Author Archives: johanna

Tilkynning til félagsmanna v.aðalfundar

Aðalfundur Félags eldri borgara í Reykjavík og nágr. Verður haldinn 13. febrúar n.k. Í samræmi við 10. grein félagslaga, óskar uppstillinganefnd eftir áhugasömum félögum til setu í stjórn félagsins. Tilkynningar þess efnis berist skrifstofu félagsins fyrir 20.desember n.k. með tölvupósti feb@feb.is eða bréflega. Með félagskveðju Uppstillinganefnd Páll Halldórsson Guðrún Árnadóttir Sjöfn Ingólfsdóttir

Tónleika í Eldborg, Hörpu 1 des. kl.16.00

ELDHUGAR, eru 300 manna blandaður kór úr átta kórum eldri borgara af höfuðborgarsvæðinu, Suðurnesjum, Selfossi og Akranesi. Hugmyndina að tónleikunum á Garðar Cortes sem einnig stjórnar kórnum. Píanóleikari: Sigurður Helgi Oddsson. Landssamband blandaðra kóra skipuleggur tónleikana. Kórinn mun flytja glæsileg íslensk kórverk og elskuð lög sem hafa fylgt íslenskri kóramenningu um áratuga skeið. Einnig verða…

Bókmenntahópur FEB. 28.11. 2019

Síðasti tíminn fyrir jól verður fimmtudaginn 28. nóv. kl. 13:00 – 15:00. Þá verður lokið við að lesa og ræða bók Bergsveins Birgissonar, Lifandilífslækur. Kl. 14:00 fáum við höfundinn í heimsókn. Hann ætlar að spjalla um bókina og baksvið hennar og svara spurningum sem hópurinn kann að hafa. Endilega notfærið ykkur tækifærið til að kynnast…

Borgarbókasafn í Grófinni.

Langar til að vekja athygli ykkar á nýrri þjónustu Borgarbókasafns, svokölluðu Tæknikaffi. Tæknikaffið er á hverjum fimmtudegi í Borgarbókasafninu í Grófinni milli 16 og 18 og er það starfsfólk safnsins sem aðstoðar gesti við ýmislegt sem tengist tölvum. T.d. við að tengjast netinu, finna vefsíður og eyðublöð, nota netið, tölvur, spjaldtölvur og síma. Það eru…

Kynning á íbúðarhóteli á Spáni. kl. 17.00 þriðjudaginn 5 nóv.

Helgafell er nýtt íbúðarhótel á Spáni í eigu Íslendinga það sem gæsileiki og góð þjónusta fara saman á hagstæðu verði. Í boði eru gælsilegar íbúðir með sér garði ásamt aðgengi að sameiginlegri sundlaug. Hvergi er til sparað í hönnun og innrétingu íbúðanna og er aðgengi sérstaklega gott fyrir eldri borgara. Þér er boðið á kynningu…