Tilkynning frá Félagi eldri borgara 12. ágúst 2019

Í dag kynnir Félag eldri borgara í Reykjavík og nágrenni sáttatillögu sem felur í sér að allir félagsmenn sem eru kaupendur íbúða við Árskóga 1 og 3 í Reykjavík og undirrita, eða hafa undirritað, skilmálabreytingu vegna kaupsamninga fái niðurfelldan hluta af kostnaðarverði íbúða sinna.Eins og fram hefur komið var vanreiknað kostnaðarverð framkvæmdanna um 401 milljón króna. Í kjölfar viðræðna sem staðið hafa yfir síðustu daga við framkvæmdar- og fjármögnunaraðila verkefnisins, hefur félagið samið um að fá afslátt af kostnaðarverði íbúðanna. Þá leggur félagið einnig sjálft til fjármuni til sáttarinnar en samtals eru það 149 milljónir króna sem dreifast á kaupendur í formi afsláttar.
Þetta þýðir að hver kaupandi greiðir 37% minna en áður hafði verið gerð krafa um. Sem dæmi ná nefna að íbúð þar sem hækkunin nam áður 7,5 milljónum verður kostnaðarhækkunin nú 4,4 milljónir króna. Nefna má annað dæmi um íbúð þar sem hækkunin nam áður 4 milljónum, hún verður nú 2,5 milljónir króna.
Forsenda félagsins hefur alltaf verið að selja íbúðirnar á kostnaðarverði en með sáttatilllögunni er verið að afhenda íbúðir undir raunkostnaðarverði. Íbúðirnar verða nú seldar á 6,9% yfir gamla kaupsamningsverðinu í stað allt að 11% sem áður hafði verið kynnt.
Þeir kaupendur sem sátu í byggingarnefnd eða gegndu trúnaðarstörfum hjá félaginu á byggingartímanum hafa lýst því yfir að þeir afsali sér rétti til afsláttarins. Þeirra hlutur í afslættinum dreifist því til hækkunar á hlut annarra kaupenda sem ganga að þessu sáttaboði og er inni í heildarlækkuninni sem fram kemur hér að framan.
Þá vill stjórn Félags eldri borgara í Reykjavík skýra frá því að byggingarnefnd félagsins hefur óskað eftir því að stíga til hliðar vegna þess í hvaða farveg málið er komið og til að stuðla að sátt.
Það er von Félags eldri borgara að samstaða náist um framangreinda tillögu hjá öllum kaupendum íbúða að Árskógum 1-3.
Ljóst er að draga verður lærdóm af þeim afdrífaríku mistökum sem gerð voru í tengslum við verðlagningu og samninga vegna íbúðanna. Endurskoða þarf með hvaða hætti staðið er að framkvæmdum sem þessum. Stjórnin hyggst í framhaldinu láta fram rannsókn á því hvernig mistökin áttu sér stað.
Allir sem hafa orðið fyrir áhrifum af mistökunum og búið hafa við óvissu vegna þeirra eru beðnir innilega velvirðingar.
Stjórn Félags eldri borgara í Reykjavík og nágrenni
 

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *