TIL HAMINGJU MEÐ DAGINN

Til hamingju með daginn kæru félagsmenn og aðrir landsmenn.
Hér má sjá fjölbreytta dagskrá 17. júní hátíðarhaldanna í Reykjavík
Hátíðardagskrá á vegum Alþingis og forsætisráðuneytisins hefst á Austurvelli klukkan 11.00. Forseti Íslands leggur blómsveig að styttu Jóns Sigurðssonar á Austurvelli, Lúðrasveitin Svanur flytur nokkur lög, Hamrahlíðarkórinn syngur og fjallkonan flytur ávarp. Að lokinni athöfn á Austurvelli verður gengið fylktu liði að kirkjugarðinum við Suðurgötu þar sem Dóra Björt Guðjónsdóttir, forseti borgarstjórnar, leggur blómsveig á leiði Jóns Sigurðssonar og Ingibjargar Einarsdóttur.
Skrúðgöngur fara frá Hallgrímskirkju og Hagatorgi stundvíslega klukkan 13.00 þar sem lúðrasveitir ganga í broddi fylkingar. Í Hljómskálagarðinum verða skátarnir með leiktæki fyrir gesti og er frítt í tækin. Boðið verður upp á sýningu og kennslu í kvistbolta eða Quidditch sem margir þekkja úr kvikmyndunum um Harry Potter. Þá munu kraftakonur keppa um titilinn Stálkona Íslands, Sirkus Íslands verður með skemmtiatriði, Stangveiðifélag Íslands kennir flugukast og boðið verður upp á hestasýningu. Í Ráðhúsi Reykjavíkur verður svo boðið upp á harmonikkuball þar sem gestir geta bæði notið tónlistarinnar og dansað.
Fyrir yngstu börnin verður Brúðubíllinn í Hljómskálagarðinum og Skoppa og Skrítla verða í Hörpu.
Stórtónleikar hefjast svo klukkan 14.00 á sviðinu í Hljómskálagarðinum þar sem fram koma meðal annarra Herra Hnetusmjör og Huginn, Friðrik Dór, Bríet og GDRN, Emmsjé Gauti & Aron Can ásamt fleirum. Tónleikunum lýkur klukkan 17.00.
75 metra lýðveldiskaka
Landssamband bakarameistara hefur hannað Lýðveldisköku í samstarfi við forsætisráðuneytið í tilefni af 75 ára afmæli lýðveldisins. Boðið verður upp á kökuna í miðbæ Reykjavíkur og verður hún 75 metrar á lengd eða sem samsvarar einni Hallgrímskirkju. Lýðveldiskakan er þriggja botna mjúk súkkulaðikaka með karamellu- rjómaostakremi og marsipani.
Opin hús í miðbænum
Þjóðminjasafnið var „morgungjöf“ þjóðarinnar til lýðveldisins eftir stofnun þess 17. júní 1944 og í tilefni tímamótanna verður opnað nýtt fjölskyldu- og fræðslurými í safninu á þjóðhátíðardaginn klukkan 14.00.
Stjórnarráðshúsið við Lækjartorg, Alþingi, Hæstiréttur, Héraðsdómur Reykjavíkur, Seðlabanki Íslands og  Hafrannsóknarstofnun vera opin almenningi frá kl. 14.00 til 18.00.
Gull og gersemar verða til sýnis í myntsafni Seðlabanka Íslands og gefst gestum og gangandi færi á að handfjatla  gullstöng og komist að virði hennar. Hjá Héraðsdómi Reykjavíkur verður hægt að fylgjast með sýndarréttarhöldum, leiðsögn verður um Hæstarétt og fiskar og fræðsla verður hjá Hafrannsóknarstofnun.
Dagskráin er fjölbreytt og nú er bara að klæða sig í sparifötin og njóta hátíðahaldanna á þjóðhátíðardaginn Reykjavík.

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *