Námskeið hefjast 24. ágúst 2020

Vegna óviðráðanlegra ástæðna munu námskeiðin hefjast mánudaginn 24. ágúst, ekki þann 17. eins og áður var auglýst.
Við leggjum mikið upp úr því að hefja félagsstarfið aftur eftir sumarfrí, þó það fari eylítið hægar af stað sökum COVID ástandsins. Munum við auglýsa þá viðburði sérstaklega sem við teljum okkur geta haldið úti á hverjum tíma og þannig mun fjölbreytnin smám saman aukast.
Það eru því miklar gleðifréttir að upplýsa að fyrstu hreyfi-námskeiðin okkar hefjast mánudaginn 24. ágúst þ.e. Zumba Gold fyrir styttra og lengra komna og STERK og LIÐUG. Hin geysivinsæla Tanya frá Heilsuskóla Tanyu mun kenna þessi námskeið líkt og undanfarin ár.
Zumba Gold fyrir styttra komna
8-vikna námskeið.
Kennt er á mánu- og fimmtudögum kl. 9.20 til 10.20.
Verð kr. 17.900
Zumba Gold fyrir lengra komna
8-vikna námskeið.
Kennt er á mánu- og fimmtudögum kl. 10.30 til 11.30
Verð kr. 17.900
STERK og LIÐUG
8-vikna námskeið
Kennt er mánu- og fimmtudögum kl. 11.30 til 12.15
Verð kr. 16.900
Þó nokkur fjöldi er þegar skráður en hver hópur mun ekki vera stærri en ca.  20 nú í upphafi. Vinsamlegast skráið ykkur með því að senda okkur línu á feb@feb.is eða hringja í síma 588 2111.
Nánar um námskeiðin:
Zumba Gold
Zumba Gold er dans og leikfimi sem notar svipaða uppbyggingu og Zumba Fitness, en breytir danssporunum og lækkar hraðann, sem hentar betur dönsurum sem eru 60 ára og eldri. Fólk getur tekið því rólega með Zumba Gold og skemmt sér konunglega í leiðinni. Fólk öðlast betri líkamsstöðu og meiri úthald. Tónlistin er jafn skemmtileg og í Zumba Fitness. Í Zumba Gold hjá Tönyu lærir fólk öll grunnsporin og samhæfingu í dansinum. Fólk lærir Salsa, Merengue, Reggaeton, Cumbia, Disco, magadans, Bollywood, Reggae, Cha-cha-cha og fl. Kerfin henta jafnt konum sem körlum.
STERK og LIÐUG
Námskeið sem Tanya hefur þróað frá grunni og er ætlað dömum og herrum eldri en 60 ára, sem geta ekki lengur stundað hefðbundna líkamsrækt. Allir tímarnir eru sérsniðnir að þörfum þátttakenda. Þeir byrja á léttri upphitun og við tekur einföld leikfimi til að örva blóðrásina. Eftir það eru gerðar  léttar rólegar styrkjandi æfingar í því markmiði að rétta úr bakinu, bæta líkamsstöðu og minnka verki í baki, hnjám og mjöðmum. Í tímunum eru notaðir lítlir Pilates boltar, teygjur með handföngum og létt handlóð.
Í lok tímans fylgja árangursríkar teygjur á meðan líkaminn er ennþá heitur til að lengja vöðvana og vinna gegn gigtarverkjum. Þetta námskeið er sérsniðið fyrir fólk á besta aldri, sem er ungt í anda, en hefur ekki lengur líkamlega getu til að stunda hefðbundna líkamsrækt. Fólk getur ennþá stundað markvissa þjálfun án þess að ofreyna liðamótin. Allir þurfa á því að halda að hreyfa sig með hækkandi aldri til þess að viðhalda góðri líkamlegri og andlegri heilsu
Þar sem þátttakendur félagsstarfsins eru í ákveðnum áhættuhópi leggjum við mikið upp úr eftirfarandi:

  • Að þátttakendur spritti hendur um leið og komið er inn.
  • Að allir virði 2 metra fjarlægðarregluna.
  • Við heilsumst án þess að nota handabönd, faðmlög og kossa.
  • Hver og einn gæti að persónulegum sóttvörnum.

Við hlökkum til að heyra frá ykkur.

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *