Mánudaginn 7. desember kl. 15:00–17:00 efnum við til notalegrar aðventustundar fyrir félagsmenn FEB.
Það gleður okkur mikið að fá Guðna Th. Jóhannesson, fyrrverandi forseta Íslands, sem sérstakan gest. Guðni mun kynna nýútkomna bók sína Vald hinna veiku – Saga landhelgismálsins, 1971–1974, þar sem hann fjallar um einn áhugaverðasta kafla í sögu þjóðarinnar. Að kynningu lokinni gefst gestum kostur á að bera fram spurningar og spjalla við Guðna.
Að því loknu stígur Kór FEB á stokk og flytur nokkur vel valin jólalög undir stjórn Kristínar Jóhannesdóttur.
Að sjálfsögðu verður boðið upp á rjúkandi heitt súkkulaði og jólakökur.
Við hlökkum til að eiga með ykkur notalega stund þar sem fróðleikur, söngur og jólastemning fara saman.
Hvar: Í Ásgarði, sal FEB í Stangarhyl 4
Tímasetning: Mánudaginn 7. des. kl. 15:00 – 17:00
Verð: 3,500 kr.
Bókanir fara fram í gegnum bókunarsíðuna klik.is eða með því að smella HÉR.
Ekki hika við að hafa samband við starfsmenn FEB í síma 588 2111 eða bara koma við á skrifstofunni, ef skráningaleiðin veldur þér vandræðum.
Njóttu með okkur, við hlökkum til að sjá þig

