Við bíðum… EKKI LENGUR!

FEB vill vekja athygli á málþingi sem LEB – Landssamband eldri borgara stendur fyrir um kjör eldra fólks
mánudaginn 2. október kl. 13.00 – 16.00 á Hilton Reykjaví Nordica, Suðurlandsbraut 2, 108 Reykjavík.

Málþingið fer fram í fyrirlestrarsal 1. hæð. Ókeypis aðgangur og öllum opið meðan húsrúm leyfir.

Málþinginu verður streymt á vef LEB www.leb.is og www.visir.is

Málþingið byggist á Stefnumörkun LEB í kjaramálum 2023 sem er í þrem hlutum:

  1. Almennar aðgerðir sem koma þeim best sem eru með lágar og millitekjur.
  2. Sértækar aðgerðir fyrir þau verst settu.
  3. Breytingar á lögum; skattalögum og lögum um almannatryggingar.

Gert er ráð fyrir að hver hluti málþingsins taki tæpa klukkustund og er stutt kaffihlé á milli.

Allir 3 hlutar málþingsins eru eins byggðir upp:

  • Erindi fulltrúa LEB um áhersluatriðið
  • Erindi ráðherra/þingmanns úr ríkisstjórn
  • Málþingsstjóri ræðir við frummælendur
  • Reynslusögur eldri borgara – myndbönd
  • Pallborð undir stjórn málþingsstjóra:
    – Tveir stjórnarandstöðuþingmenn
    – Forystumaður verkalýðshreyfingar
    – Eldri borgari
    – Sérfræðingur í kjaramálum eldra fólks

Nánari dagskrá HÉR: Dagskrá Við bíðum…