Tilkynning til félagsmanna FEB

Aðalfundur Félags eldri borgara í Reykjavík, FEB, fyrir árið 2024 verður í Ásgarði, sal félagsins í Stangarhyl 4 þann 21. febrúar nk. kl. 14:00.

Uppstillingarnefnd félagsins er að störfum skv. 10. gr. laga félagsins.

Nefndin óskar eftir uppástungum/tillögum og framboðum áhugasamra félagsmanna í eftirtalin trúnaðarstörf fyrir félagið.

I. Formaður félagsins, kosinn til tveggja ára.
II. Félagsmenn til setu í stjórn félagsins.

Tillögur þar um berist í tölvupósti á feb@feb.is í síðasta lagi fyrir lok dags 6. febrúar 2024, þar sem fram þarf að koma nafn, kennitala og sími

Sigríður Ásta Hallgrímsdóttir
Óskar Magnússon
Kári Jónasson