Tilkynning til félagsmanna FEB

Vegna aðalfundar FEB árið 2023, sem haldinn verður  í Ásgarði sal félagsins í Stangarhyl 4, 2. mars nk. kl. 14:00

Uppstillingarnefnd félagsins er að störfum samkvæmt 10. gr. laga félagsins.
Nefndin óskar eftir uppástungum/tillögum um áhugasama félagsmenn til setu í stjórn félagsins.
Tillögur þar um berist félaginu í tölvupósti feb@feb.is fyrir lok dags 13. febrúar næstkomandi.

Brynjólfur Helgason, formaður
Sverrir Örn Kaaber, meðstjórnandi
Sigríður Ásta Hallgrímsdóttir, meðstjórnandi