Skrifstofa FEB lokar vegna sumarfría

Skrifstofa Félags eldri borgara í Reykjavík og nágrenni lokar vegna sumarleyfa dagana 18. júlí til og með 5. ágúst.

– FEB dansleikirnir hefjast aftur sunnudaginn 7. ágúst.
– Fyrsta FEB-ferðin eftir sumarfrí er Fjallabaksleið nyrðri, Landmannalaugar, sem farin verður 10. ágúst.
– Fyrsti tíminn í leikfiminni „Sterk og liðug“ eftir frí verður þriðjudaginn 16. ágúst.
– Fyrsti tíminn í Zumba Gold eftir frí verður einnig þriðjudaginn 16. ágúst.

Annað félagsstarf auglýst síðar

Hafið þið það sem allra best og njótið sumarsins.