Matarklúbbur FEB fyrir karlmenn 60+ slær í gegn. Nýr hópur byrjar mánudaginn 30. október – ert þú búinn að skrá þig?

 

Langar þig í matarklúbb með öðrum körlum?
Langar þig að læra að elda einfaldan mat?
Hefur þú lítið stuðningsnet og/eða ert óvanur að elda?
Eða langar þig bara að koma og vera með?

Þá er matarklúbbur FEB fyrir karlmenn 60+ eitthvað fyrir þig!
Þú þarft ekki að hafa reynslu af matseld til að taka þátt, bara að langa til að elda og/eða að læra að elda og að borða í góðum félagsskap. Leiðbeinandi er Kristján E. Guðmundsson sem er áhugakokkur á sama reki og þú og hefur ánægju af að elda og leiðbeina öðrum.

Næsti klúbbur byrjar mánudaginn 30. október kl. 16:30 með upplýsingafundi þar sem þátttakendur kynnast lítilega, farið verður yfir framkvæmdina og matseðill næstu vikna verður ákveðinn. Næstu tímar þar á eftir verða á mánudögum frá kl. 16:30 -19:00 í fimm vikur og verður því  síðasti tíminn mánudaginn 4. desember. Klúbburinn nýtir sér aðstöðuna í húsakynnum FEB í Stangarhyl 4.

Ummæli frá síðasta vetri í matarklúbb FEB: Frábær matur, skemmtilegur félagsskapur og dýrmæt kennsla í hvernig á að bjarga sér í eldhúsinu! Kristjan E Gudmundsson kenndi af þvílíkri fagmennsku og snilld. Takk fyrir mig

Skráning fer fram á skrifstofu FEB, í gegnum síma 588 2111 eða með því að senda póst á netfangið feb@feb.is.

Komdu og vertu með – eða ef þú veist um einhvern sem þú heldur að hefði gaman af því að vera með – láttu hann endilega vita.