Ert þú karl sem elskar gamaldags íslenskan mat?

Langar þig í matarklúbb með öðrum körlum?
Langar þig að læra að elda einfaldan íslenska mat?
Hefur þú lítið stuðningsnet og/eða ert óvanur að elda?
Eða langar þig bara að koma og vera með?

Þá er matarklúbbur FEB fyrir karlmenn 60+ eitthvað fyrir þig!
Þú þarft ekki að hafa reynslu af matseld til að taka þátt, bara að langa til að elda og/eða að læra að elda og að borða í góðum félagsskap.

Leiðbeinandi er Kristján E. Guðmundsson sem er áhugakokkur á sama reki og þú og hefur ánægju af að elda og leiðbeina öðrum.

Ætlunin er að hittast einu sinni í viku í fimm vikur, á þriðjudögum á milli kl. 18:00 – 20:00 í húsakynnum FEB í Stangarhyl 4. Við byrjum þriðjudaginn 1. nóvember með upplýsingafundi, þar sem nánar verður farið yfir framkvæmdina og matseðill fyrir næstu fjóra tíma verður ákveðinn. Um er að ræða 5 vikna tímabil sem hefst þriðjudaginn 1. nóvember.

Skráning fer fram á skrifstofu FEB, í gegnum síma 588 2111 eða með því að senda póst á netfangið feb@feb.is.

Komdu og vertu með – eða ef þú veist um einhvern sem þú heldur að hefði gaman af því að vera með – láttu hann endilega vita.