Aðalfundur FEB fimmtudaginn 2. mars

Aðalfundur Félags eldri borgara í Reykjavík og nágrenni (FEB) verður haldinn í Ásgarði, sal FEB Stangarhyl 4, 110 Reykjavík, fimmtudaginn 2. mars, kl. 14:00.

  • Tillögur og erindi sem leggja á fyrir fundinn skulu hafa borist stjórn félagsins skriflega minnst einni viku fyrir aðalfund.
  • Tillögur uppstillingarnefndar um fólk í stjórn munu liggja frammi á skrifstofu félagsins í tvær vikur fyrir aðalfundinn.
  • Tilkynningar einstakra félagsmanna um framboð til stjórnarkjörs skulu berast skrifstofu félagsins minnst einni viku fyrir aðalfund.
  • Tillögur um breytingar á lögum félagsins þurfa að berast stjórn félagsins með minnst tveggja vikna fyrirvara.

Stjórn Félags eldri borgara í Reykjavík og nágrenni