Sigurður Ágúst Sigurðsson sjálfkjörinn formaður FEB

Á aðalfundi Félags eldri borgara í Reykjavík og nágrenni sem haldinn var í Ásgarði, sal FEB  þann 25. febrúar 2026, var Sigurður Ágúst Sigurðsson sjálfkjörin formaður FEB.

Á fundinum var kosið í stjórn og varastjórn, samtals sex manns.
Atkvæði greiddu 60 félagsmenn, þar af var eitt atkvæði ógilt

Til tveggja ára í aðalstjórn voru kjörnir:

Fanney Sigurbjörg Jóhannsdóttir með 58 atkvæði
Sigrún E. Unnsteinsdóttir með 58 atkvæði
Guðrún Ósk Jakobsdóttir með 57 atkvæði

Þrír voru kosnir í varastjórn til eins árs en þeir eru:

Kristján Guðmundsson með 57 atkvæði
Hörður Hilmarsson með 56 atkvæði
Jóhann Gunnar Ásgrímsson með  40 atkvæði

Hlutkesti réði þegar atkvæði voru jöfn og er það samkvæmt lögum félagsins.

Fyrir í stjórn sitja:

Ástrún Björk Ágústsdóttir
Guðrún Bergmann
Gunnlaugur Auðunn Júlíusson

Er þeim öllum óskað velfarnaðar í starfi.