París kallar heillin 😊

Vorum að setja í sölu ferð til Parísar dagana 10. til 14. júní.
FEB-ferðir í samvinnu við ferðaskrifstofuna Betri ferðir bjóða uppá fjögurra nátta ferð til Parísar í sumar þar sem flogið er með Icelandair. Ætlar þú ekki að koma með?

 
Fáar borgir hafa upp á jafn mikið að bjóða eins og París, hin óviðjafnanlega borg ástar og rómantíkur.  Ferð þangað í sól og sumaryl verður öllum ógleymanleg.  Gist á hótelinu des Mines rétt við Luxemburg garðinn í hjarta borgarinnar.  Í boði er ökuferð um borgina í þrjár klukkustundir þar sem allt það markverðasta í miðborginni er skoðað m.a. farið í listmannahverfið fræga Montmartre.  Einnig er létt gönguferð á slóðir Moulin Rouge með sögulegu ívafi, sigling á Signu með kvöldverði og yndislegri tónlist o.fl.
Fararstjóri: Lilja Hilmarsdóttir hjá Betri ferðum.
Verð: 269.000 á mann í tvíbýli en 344.000 í einbýli
 
Innifalið í verði ferðar er : 

    • Flug með Icelandair.  
    • Gisting í 4 nætur með morgunverði.  
    • Skoðunarferð í rútu um borgina og það markverðasta í miðbænum skoðað.
    • Létt gönguferð með sögulegu ívafi á slóðir Moulin Rouge.
    • Sigling á Signu með kvöldverði og ljúfri tónlist.
    • Tveir kvöldverðir á veitingahúsi við hótelið.
    • Akstur til og frá flugvelli svo og íslensk fararstjórn.

 
Bókanir fara fram í gegnum bókunarsíðuna klik.is eða með því að smella á París