Nýtt félagsskírteini, Félagstíðindi og Afsláttarbók

Ágæti félagsmaður
Nú fer skilvísum greiðendum félagsgjalda FEB – sem ekki hafa afþakkað sendingu á pappír – að berast bréfpóstur sem inniheldur þrennt:

  1. Félagstíðindi FEB 2026
  2. Félagsskírteini FEB sem gildir til 31. mars 2027
  3. Afsláttarbók 2026

Þetta er allt sent saman í stóru umslagi, vinsamlegast skoðaðu innihald umslagsins vel áður en því er fargað, þar sem félagsskírteinið er svo lítið og gæti því auðveldlega orðið eftir.

Við viljum sérstaklega vekja athygli á því, að allt þetta þrennt er einnig hægt að nálgast með rafrænum hætti.

  • Félagstíðindin er að finna rafrænt á heimasíðu FEB
  • Félagsskírteinið er að finna rafrænt inní Appinu Spara.
  • Afsláttarbókina 2026 er að finna rafrænt á heimasíðu FEB

Þeir félagsmenn sem óskuðu eftir rafrænu félagsskírteini fá ekki send Félagstíðindi og Afsláttarbók á pappír. Við hvetjum sem flesta félagsmenn að bætast í þennan hóp, því þannig náum við verulegri hagræðingu fyrir félagið og þar með félagsmenn.

Með von um að sendingin berist þér fljótt og vel, en að þú sjáir þér líka hag í því að vera rafrænn notandi í framtíðinni.