Ályktun samþykkt á aðalfundi Félags eldri borgara í Reykjavík og nágrenni 2026

Ályktun á aðalfundi FEB 25. febrúar 2026          

Aðalfundur Félags eldri borgara í Reykjavík og nágrenni (FEB) skorar á ríkisstjórn Íslands að beita sér fyrir því að umfang og eðli ofbeldis gagnvart öldruðu fólki á Íslandi verði rannsakað og greint. Í framhaldi af niðurstöðum slíkrar úttektar er nauðsynlegt að sett verði upp aðgerðaáætlun til að draga úr og helst uppræta ofbeldi gagnvart þessum þjóðfélagshóp.

Ofbeldi gagnvart öldruðu fólki er þjóðfélagslegt böl sem ber að uppræta. Nauðsynlegt er að taka opinskáa umræðu um stöðu mála í þessum efnum. Ekki er lengur hægt að forðast umræðu um þessi mál og reyna á þann hátt að þagga hana niður.

Ýmis teikn eru á lofti um að tilfellum um ofbeldi gagnvart öldruðu fólki fari fjölgandi. Vakin hefur verið athygli á að mjög lítill hluti ofbeldis af þessum toga er tilkynntur til lögreglu eða annarra hlutaðeigandi yfirvalda. Skýringar liggja í því að oftast eru gerendur nánir ættingjar, heilbrigðisstarfsfólk, vinir eða trúnaðarvinir sé tekið mið af rannsóknum um þessi mál í öðrum norrænum ríkjum.

Umræða síðustu mánaða um þessi mál hefur leitt í ljós að ofbeldi gegn öldruðu fólki er algengara en flesta hafði almennt grunað.

Tökum höndum saman um aðgerðir til úrbóta í þessum efnum. Aldrað fólk á það skilið.