Aðalfundur FEB haldinn 25. febrúar – dagskrá

Aðalfundur Félags eldri borgara í Reykjavík og nágrenni (FEB) verður haldinn í Ásgarði, sal FEB Stangarhyl 4, 110 Reykjavík, miðvikudaginn 25. febrúar 2026, kl. 14:00.

Dagskrá aðalfundar

A) Kosning fundarstjóra og fundarritara.
B) Lögð fram skýrsla stjórnar um starfsemi félagsins á liðnu ári
C) Lagðir fram endurskoðaðir og áritaðir ársreikningar félagsins ásamt fjárhagsáætlun rekstrarársins.
D) Umræður um skýrslu stjórnar, ársreikninga og fjárhagsáætlun.
E) Lagabreytingar.
F) Kosningar:

1. Kosning formanns
2. Kosning þriggja manna í stjórn og þriggja manna í varastjórn félagsins
3. Kosning skoðunarmanna ársreikninga

G) Afgreiðsla tillagna og erinda sem lögð eru fyrir fundinn. Slíkar tillögur og erindi ber að senda stjórn félagsins skriflega minnst 1 viku fyrir aðalfund.
H) Tekin ákvörðun um árgjald félagsmanna
I) Önnur mál

1. Kynning formanns og framkvæmdastjóra Landssambands eldri borgara (LEB) á starfsemi LEB.
2. Önnur mál

Stjórn Félags eldri borgara í Reykjavík og nágrenni