|
Fimmtudagur, 02. febrúar 2012 09:09 |
|
Í lögum Félags eldri borgara í Reykjavík og nágrenni segir í gr. 7.5:
,,Tillögur félagsmanna um einstaka menn til stjórnarkjörs skulu berast uppstillingarnefnd eða skrifstofu félagsins minnst tveimur vikum fyrir aðalfund"
Eins og auglýst hefur verið verður aðalfundur haldinn föstudaginn 17. febrúar 2012 og því rennur frestur, til að tilnefna menn til stjórnarkjörs hjá félaginu, út föstudaginn 3. febrúar.
Sjá lög félagsins í heild sinni hér. |
|
|
Miðvikudagur, 25. janúar 2012 13:48 |
|
Félagsfundur Félags eldri borgara í Reykjavík og nágrenni (FEB) verður haldinn í Stangarhyl 4 föstudaginn 27. janúar nk. kl. 16:00. Á fundinum verða lagðar fram og kynntar tillögur laganefndar að breytingum á lögum FEB, þar sem m.a. er lagt til að fækkað verði í stjórn félagsins úr 11 í 7 manns, auk annarra breytinga.
|
|
Nánar...
|
|
Miðvikudagur, 11. janúar 2012 14:01 |
|
Leikfélagið Snúður og Snælda stendur fyrir námskeiði í framsögn, leiklestri og tjáningu undir stjórn Bjarna Ingvarssonar. Námskeiðið hefst þriðjudaginn 24. janúar n.k. kl. 17.00 og stendur í 8 skipti.
Skráning er á skrifstofu félagsins í s. 588 2111 eða með tölvupósti
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
.
Námskeiðsgjald er kr. 8.500.- |
|
Miðvikudagur, 04. janúar 2012 10:21 |
|
Nú er félagsstarfið að hefjast að nýju eftir jólafrí.
- Bridds hefst fimmtudaginn 5. janúar kl. 13.00
- Skák hefst þriðjudaginn 3. janúar kl. 13.00
- Göngu Hrólfar ganga á miðvikudaginn 4. janúar kl. 10.00
- Söngvaka hefst miðvikudaginn 4. janúar kl. 14.00
- Félagsvist hefst þriðjudaginn 10. janúar kl. 20.00
- Síðdegisdans hefst miðvikudaginn 11. janúar kl. 14.00
- Bókmenntaklúbbur hefst fimmtudaginn 5. janúar kl. 14.00
- Danskennsla hefst mánudaginn 9. janúar - línudans byrjendur kl. 17.00, línudans framhald kl. 18.00 og samkvæmisdansar kl. 19.00
- Námskeið í Eyrbyggju hefst föstudaginn 20. janúar kl. 13.00 - skráning er hafin á skrifstofu félagsins í síma 588 2111
|
|
Mánudagur, 19. desember 2011 10:33 |
|

Félag eldri borgara í Reykjavík og nágrenni sendir félagsmönnum sínum og landsmönnum öllum bestu óskir um gleðileg jól með þakklæti fyrir samskipti og samstarf á árinu sem er að líða. Megi nýja árið færa Íslandi og Íslendingum farsæld og velgengni á sem flestum sviðum lífsins!
Félagið vekur jafnframt athygli á því að skrifstofan að Stangarhyl 4 verður lokuð frá föstudeginum 23. desember 2011 og opnar aftur mánudaginn 2. janúar 2012 kl. 10:00. |
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>
|
|
Síða 1 af 16 |